Ađalvalmynd

Auglýsing

Könnun

Hvađ á ađ kjósa í vor?

Klukkan

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Fréttir

12. apríl 2007 klukkan 19:19
Þær eru nú ekki margar. Þessi mánuður verður pínu crazy vegna þess að prófin verða nokkur í mánuðinum, og svo er ég að fara á sjó 30.apríl. Þyrfti því helst að klára prófin fyrir þann tíma, reyndar get ég tekið prófin með út á sjó og leyst þau þar, en hitt væri samt betra. Þarf að skrifa lögregluskýrslu um víg Gunnars á hlíðarenda  í dag, en nenni því ómögulega, svo ef einhverjum langar að gera það fyrir mig er það guðvelkomið.
 Mér finnst alveg merkilegt hvað blaðamenn vilja skrifa mikla vitleysu á mbl, t.d það hörmulega slys sem átti sér stað í gær, þegar manns var saknað í vopnafirði og fannst í dag látin í sjónum. Vitleysan var semsagt í skrifunum: Bátur fannst mannlaus uppí fjöru en ekkert brak fannst úr honum??? ég fatta ekki alveg, og svo annað dæmi þegar snjóflóð féll fyrir vestan um árið, þá hringdi Elín Hirst í sjónarvott tæpum 2 tímum eftir flóðið og spurði: stendur flóðið enn yfir?????, og annað þegar fréttamaður var grenslast fyrir um þegar bátur varð aflvana og náði tali af skipstjóranum, og svo í samtalinu spyr fréttamaðurinn: var vélin í gangi áður en drapst á henni??? þetta eru ótrúleg mismæli miðað við hvað fréttamenn eru vel að sér í íslensku máli.
Tökum sem dæmi, ég nota orðið aflvana en ekki vélarvana, vegna þess að samkvæmt íslensku máli merkir vélarvana að það sé engin vél, og ef bátur verður vélarvana útá sjó er merkir það að vélin hafi dottið úr bátnum(semsagt gat á kjölinn, og ætti samkvæmt því að sökkva í kjölfarið) bátur verður því aflvana:-). en svo má náttúrulega rökræða um málhefðina...
Annars allt eins liðið hans sveins, Góða vakt
Lordinn

Tađskegglingar

01. apríl 2007 klukkan 09:22
Af hverju ætli karlmenn vilji ekki hafa skegg nú til dags? Í gamla daga bar skegg vott um mikilmennsku, en þeir sem eigi höfðu skegg voru aumingjar, hommar eða eitthvað þaðan af verra. Svo ég vitni nú bara í Njálu, þar var gert grín af mönnum sem ekki höfðu skegg- kallaðir taðskegglingar. Ég hafði í hyggju að safna skeggi í metersvís, en konan hótaði að klippa skeggið á mér meðan ég svæfi föstum svefni. Þess vegna verð ég að láta duga kleinuhring um kjaftinn, og smá brodda. En að sjá alla taðskegglingana á íslandi!!! Ætli þeir séu samkynhneigðir? eða er nútímasamfélagið að fara til Húsavíkur???
Jæja , hafið það ekki sem verst, annars allt eins liðið hans Sveins.
Góða vakt!
Lordinn

Andskotans....

22. mars 2007 klukkan 18:54
Er það bara ég, eða er umferðin í rvk hundleiðinleg? hún fer allavega mikið í taugarnar á mér. Hvað um það...
Það hefur kennt ýmissa grasa hjá mér í dag. Var niður í sjávarútvegsráðuneyti ásamt góðum mönnum á kynningu um stefnu og störf ráðuneytisins  í góðu yfirlæti. Ekki kom þó á óvart að kynda fór undir mönnum er rætt var um byggðakvótann og línuívilnun, enda er það næstum blóðhita mál og ég held ,svei mér, að öngvir 2 einstaklingar séu sammála í þeim efnum, og aumingja Stefán embættismaður mátti hafa sig allan við að koma sér útúr þeim umræðum. Annars fór það vel fram og fóru menn út sælir og glaðir með stútfullan maga af gosi og kaffi.
 Fékk tilbaka verkefni í stæ hjá klepp-hraðferð, og viti menn, fékk 9,65. Kom mér soldið á óvart því þetta er soddan djöfuls handavinna og drepleiðinlegt. Lokapróf í stæinu og sjóréttinum í næstu viku, þannig að næsta vika verður heitasta helvítis fjör.
Annars nenni ég minna að skrifa meir, enda rigning úti.
Veit einhver annars deili á(eða góðar sögur af) fyrirbærinu?????? Þær væru teknar fegins hendi:-)
....allt eins liðið hans sveins, góða vakt!

Femínisti

21. mars 2007 klukkan 11:26
Mér varð hugsað til þessa orðs, eftir að ég rambaði á síðu Katrínar feministadrottningu og stenst margt ekki við neitt sem hún segir. Aftur á móti virðist hún stundum gleyma hvað  feministi er. Ekkert hefur komið fram hjá henni varðandi jafnrétti karlkynsins. Í bráðabirgðalögum á íslandi segir skýrt að ef 1 karl og 1 kona sækja um starf, Á kona að fá starfið. Í mínum huga kemur ekkert jafnrétti þar fram og ætii HÆFASTI einstaklingurinn óháð kyni að fá starfið, ekki rétt? Hver fær forræði yfir barni/börnum ef hjón skilja? ef bæði eru vel stæð og heilbrigð á geði, fær konan forræði í flestum tilvikum, ekki er það jafnrétti. Aftur á móti eru karlmenn sem vilja drottna yfir öllu og kalla ég það á latínu Homo hálfvitus. Þeim má útrýma. Vonumst eftir betri tíð í þessum efnum, og þar til næst....Allt eins liðið hans sveins, Góða vakt.
Lordinn

Pólitík.....

17. mars 2007 klukkan 19:46
Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að fylgi vinstri-grænna hefur aukist til muna nú á síðustu misserum.
Erfitt er að útskýra þetta fylgi sem þeir hafa og hafa menn velt því mikið fyrir sér, en að mínu mati er þetta fylgi þeirra ekkert skrýtið. Undanfarið hefur flensan farið mikin, og tel ég að fólk sé enn með óráði,og því veit það ekki hvað það er að segja. Ég er þeirrar skoðunar að ríkisstjórnin haldi velli og breytist eigi, því miður, eða hvað? Fylgi framsóknarflokksins er lítið sem ekkert og er það vel. Aftur á móti held ég þegar fólk fari að kjósa, merki það við B af gömlum vana,jú, eða fjölskyldutengsla.
Var að velta fyrir mér,ráðherrar geta varla verið konur því þá ætti embættið að heita ráðfrú. Ætti ekki bara að gera eins og í fótboltanum að stofna sér deild fyrir konurnar á þingi,og leyfa þeim að leika sér þar?Þær mættu svo koma með einstaka tillögu sem yrði tekin fyrir annað slagið. Svipað eins og kellingar hafa ekkert með nefnið skipherra að gera, enda eiga kellingar ekkert að flækjast á sjó yfir höfuð.
Smá pæling, þó svo að það sé ekkert til í henni,...eða?
Annars allt eins liðið hans sveins,
góða vakt
Þögull sem gröfin
Lordinn

Djöfulsins......

13. mars 2007 klukkan 15:47
Mikið djöfull er vont að láta meisa sig.
Við lordnemar þurftum að láta meisa okkur í dag upp í lögguskóla, og mikið djöfull helvíti sveið þessi viðbjóður í andlitinu, augunum nefinu og skegginu og bara öllu sem hægt er að svíða í...! Maður þurfti að vera með hausinn oní vatnsfötu í korter,nánast án þess anda, og held ég alveg  örugglega að það sé miklu betra að drukkna heldur en að fá meis á sig...ojjj.
Annars er allt við sama heygarðshornið, enda hef ég ekki tíma fyrir meiri skrif í bili. Þarf að fara að ná í krakkana í leikskólann,
Annars allt eins liðið hans eggerts, Góða vakt

Breytingar .........

06. mars 2007 klukkan 15:39
Eins og sést hef ég breytt eilítið síðunni og munu frekari aðgerðir vera í bígerð. Annars er leikur Liv-Barc í kvöld, og verður það eflaust mikil rimma. Fyrri leikur liðanna lyktaði með sigri rauða hersins 1-2. Og verður því í ramman við reip að draga fyrir leikmenn Börsunga. Eflaust á Ronaldihno eftir að láta gamminn geysa í leiknum og má búast við því að kamerúninn verði eins og gammur í teignum við mark enskra, en ég hugsa að Kóngurinn, eða captain Fantastic, verði snillingunum í barca of erfiður, og má kannski segja að í leiknum muni skrattinn hitta ömmu sína, þ.e.a.s ronaldhino vs gerrard.
Annars hef ég lítið að segja, og hef ég ákveðið að hætta skrifum um fyrirbærið.

Þar til næst.....
Allt eins liðið hans sveins,Góða vakt

Frćga fólkiđ.....

17. febrúar 2007 klukkan 08:32
Þriðjudaginn síðasta skellti ég mér í laugardalslaugina og var það vel. Í pottinum rakst ég á mann sem oft er nefndur rabbi rikk,sem er kannski ekkert frásögu færandi, en eftir að hafa talað við hann færði ég mig um set og fór í stóran pott með stóum steini í miðjunni.
Þar lá ég í makindum og var djúpt hugsi, er ég leit svo upp, kom ég auga á annan mann sem ég kannaðist við en kom því samt ekki fyrir mig hver þetta var. Fór ég svo uppúr og heim.
Daginn eftir var ég að lesa fréttablaðið og kom ég þá auga á kauða aftur, þar var grein og mynd af kappanum. Kappinn reyndist vera Jude Law og kveikti ég þá á perunni hver kallinn í lauginni var sem ég hafði séð daginn áður.....Ekki að það sé eitthvað merkilegt en konan var hálf fúl við mig að segja sér þetta ekki strax eða jafnvel fara með sig  í sund.
Hvað um það, engar fréttir,
Allt eins,liðið hans sveins
 Góða vakt!
Lordinn

Samantekt á furđuverkum fyrirbćrisins

15. febrúar 2007 klukkan 13:55
Já, fyrirbærið er engu líkt. Það er nokkuð víst.
Eins og áður hefur verið lýst er fyrirbærinu meinilla við flestallt, en það sem er einna mest skrítið við fyrirbærið er að það er gífurlega sjóhrætt.Fyrirbærið hefur verið til sjós í fjölda ára, og alltaf jafn hrætt við hafið. Gott dæmi um það er t.d þegar fyrirbærið og meistarinn voru saman í brúnni. Úti voru 40 m/s og stórhríð. Meistarinn situr hinn rólegasti í stólnum og skoðar neglurnar á sjálfum sér sem og athugar stefnu skipsins annað slagið, EN fyrirbærið rígheldur sér með klesst nefið út í glugga og skelfur af hræðslu. Meistarinn ákveður að reyna að róa fyrirbærið og segir því hátt:"H...........,djöfullinn maður,manstu eftir því í gamla daga þegar við duttum íða eitt kvöldið og dönsuðum allt kvöldið og fórum svo eftir það að kítla stelpurnar maður?Rosalega var það það gaman maður." Fyrirbærið " Haaaaa, kítla stelpur? úti er stórsjór og stormur,skipið heggur og sjór gengur yfir og þú talar um að kítla stelpur? Það má ekki, alveg bannað" Þessi orð komu, að sögn meistarans,útúr fyrirbærinu ásamt allri froðunni sem vall útúr kjaftinum á fyrirbærinu.Því ,jú, fyrirbærið froðufellir þegar það er hrætt. Þar með vissi meistarinn að útilokað værir að tala við fyrirbærið....nema í landi!
Fyrirbærið húðskammaði saklaust hásetagrey eitt sinn. Ástæðan? jú hásetinn fór að ósk fyrirbærisins og klippti gat á G-mjólkurfernuna til að fyrirbærið gæti sett út í kaffið. Fyrirbærið froðufelldi og skammaðist yfir því að OF STÓRT gat hefði verið klippt á fernuna, því flugan gæti komist ofaní fernuna!!. ( Í fyrsta lagi ERU engar flugur út á sjó, það er þó undantekning. Í öðru lagi, ef ég væri flugan, færi ég frekar ofaní sykurkarið við hliðina á fernunni.
Þannig að, fyrirbærið er .................................!
Annars allt eins, liðið hans sveins. Góða vakt!

Styttist í helgi

08. febrúar 2007 klukkan 18:10
Jæja, það styttist óðum í helgina, og er ég þess fullviss að margir eiga eftir að vera piss!(hehe rímar)...piss piss, president bush,pissaábush....
Hvað um það, familían eru í heimsókn hjá vinkonu olgu og því sit ég einn heima að ÞYKJAST vera að læra fyrir helv..... sjóréttin, því næsta miðvikudag er próf hjá henni kötlupjötlu í sjóréttinum. Ég er þess fullviss að þar er um þungt próf að ræða enda er hún femínisti mikill og ætlar sér að hefna sín á öðrum mönnum með því að láta það bitna á okkur! hljómar undarlega, en eitthvað til í því samt :-/ en samt skil ég ekki hvaða efni hún er að þvæla okkur í, því hún er að fara í stjórnsýslulögin og opinbert réttarfar, sem kemur okkur vesalings sjómannstittunum ekkert við.Tala af sér
Ein saga af fyrirbærinu í lokin: Fyrirbærið fór út að borða með konu sinni og vinum á lækjarbrekku. Þau pöntuðu sér djúpsteiktan fisk og alles,voða fínt allt saman. En,eins og oft áður í kringum fyrirbærið, þá gerist eitthvað undarlegt. Fyrirbærið fær sinn fisk á disk og meðlæti en horfir á matinn og veltir því fyrir sér af hverju fiskurinn sé baðaður í olíudeigi. Nú ,eins og fyrirbærinu er einu lagið, byrjar það að kroppa olíudeigið af fiskinum og staflar því á annan disk til að hafa sýkinguna ekki nálægt sér. svona pantar hann sér 2-3 diska og gerir alltaf það sama.Þegar allir eru búnir að borða kemur yfirþjónninn að borðinu og spyr:"var maturinn góður"?, fyrirbærið svarar "hann var ekkert sérstakur". Yfirþjónninn "Hvað segiru, var hann ekki góður"?,fyrirbærið bendir á diskinn með olíudeiginu og segir " Hvað kallaru þetta"?,Yfirþjónninn "þetta er matur", fyrirbærið lítur á hann með fyrirlitningu og segir hneykslaður "Matur?!? ég skal borga þér fyrir að éta þetta".. Semsagt svona hagar fyrirbærið sér.
Bless og góða vakt (minni á könnunina hér til hliðar )
Lordinn